Um Amara

Amara Professional er íslensk netverslun með áherslu á vandaðar og faglegar vörur fyrir naglafræðinga og alla sem kunna að meta fallega hand og naglaumhirðu.

Við leggjum áherslu á að velja vörur sem sameina gæði, virkni og fallega hönnun. Vörur sem við sjálf elskum og treystum.

Amara Professional er opinber söluaðili Navy Professional á Íslandi, bresks vörumerkis sem er þekkt fyrir handunnin verkfæri og lúxus hand- og naglaumhirðu.

Markmiðið okkar er einfalt: að færa íslenskum viðskiptavinum fallegar, vandaðar og faglegar vörur sem gera hversdagslega umhirðu aðeins betri. ♡

Amara Professional – fagmennska, gæði og umhirða.